Hringferðin
Hringferðin
Ritstjórn Morgunblaðsins
Í tilefni 110 ára afmælis Morgunblaðsins leggjum við land undir fót og ræðum við 110 Íslendinga hringinn um landið. Ferðin stendur yfir í heilt ár og í henni verður jafnt og þétt dregin upp spennandi mynd af lífinu í landinu frá sjónarhóli heimamanna á hverjum stað, með sögum af fólki, því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja til þess að efla samfélagið til framtíðar. Ferðin stendur yfir í heilt ár og mun jafnt og þétt draga upp spennandi mynd af því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja.
#35 - Bræðrabrugg í Eyjum
Brothers Brewery hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem eitt áhugaverðasta brugghús landsins. Það er starfrækt í glæsilegu húsnæði í Vestmannaeyjum og nú hefur fyrirtækið opnað minnsta bar á Íslandi við höfnina í Eyjum. Þessu öllu fengu blaðamenn Morgunblaðsins að kynnast á ferð sinni út í Heimaey.
Jun 22, 2024
40 min
#34 - Eldheimar í Vestmannaeyjum
Þegar hugmyndir um minjavörslu tengda Vestmannaeyjagosinu fóru að taka á sig mynd upp úr aldamótum óraði engan fyrir því hvers konar aðdráttarafl fælist í því að segja þessa sögu. Eldheimar hafa sannað sig sem mikilvægur áfangastaður fyrir erlenda ferðamenn jafnt sem Íslendinga þegar Heimaeyjar er vitjað.
Jun 19, 2024
25 min
#33 - Listamaður á Háaleitisbraut og í Den Haag
Sigurður Sævar Magnúsarson hefur um nokkurra ára skeið verið mjög áberandi í íslensku myndlistarlífi. Hann hefur á sama tíma stundað nám við Konunglegu listaakademíuna í Den Haag í Hollandi. Hann heldur úti vinnustofu á Háaleitisbraut en stefnir á útrás með haustinu. Moggamenn tóku hús á listamanninum.
Jun 8, 2024
36 min
#32 - Heitar kappræður í Hádegismóum
Fyr­ir svör­um eru þeir fimm for­setafram­bjóðend­ur sem hlotið hafa 10% fylgi í skoðana­könn­un­um eða meira: Þau Bald­ur Þór­halls­son pró­fess­or, Halla Hrund Loga­dótt­ir orku­mála­stjóri, Halla Tóm­as­dótt­ir for­stjóri, Jón Gn­arr leik­ari og Katrín Jak­obs­dótt­ir fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra. Í upp­hafi kapp­ræðna eru kynnt­ar glóðvolg­ar niður­stöður síðustu skoðana­könn­un­ar sem Pró­sent ger­ir fyr­ir Morg­un­blaðið og mbl.is.
May 30, 2024
1 hr 17 min
#31 - Reykjanesbær Halla Tómasdóttir
Á þriðja hundrað manns mætti á for­seta­fund Morg­un­blaðsins og mbl.is með Höllu Tóm­as­dótt­ur á Park Inn by Radis­son í Reykja­nes­bæ í gær­kvöldi. Þetta var síðasti for­seta­fund­ur­inn en í næstu viku verða haldn­ar for­se­takapp­ræður á veg­um Morg­un­blaðsins og mbl.is. Halla hef­ur verið á flugi í skoðana­könn­un­um að und­an­förnu og mun­ar núna inn­an við sex pró­sentu­stig­um á henni og Katrínu Jak­obs­dótt­ur, sem er með mesta fylgið, í skoðana­könn­un Pró­sents sem kom út á mánu­dag.
May 24, 2024
1 hr 19 min
#30 - Akureyri Katrín Jakobsdóttir
For­seta­fund­ur Morg­un­blaðsins á Græna hatt­in­um á Ak­ur­eyri með Katrínu Jak­obs­dótt­ur var fjöl­sótt­ur, en á annað hundrað manns gerðu sér leið þangað. Blaðamenn­irn­ir Andrés Magnús­son og Stefán Ein­ar Stef­áns­son stýrðu fund­in­um og spurðu Katrínu ým­issa spurn­inga um embætti for­seta Íslands og hvernig hún hygðist haga setu sinni í embætt­inu.
May 21, 2024
1 hr 14 min
#29 - Selfoss Baldur Þórhallsson
Hátt í 200 manns sóttu for­seta­fund Morg­un­blaðsins með Baldri Þór­halls­syni á Hót­el Sel­fossi þar sem líf­leg­ar umræður sköpuðust um ýmis mál. Í upp­hafi fund­ar voru álits­gjaf­ar fengn­ir til að ræða stöðuna og spá í spil­in um for­seta­kosn­ing­arn­ar. Kjart­an Björns­son, rak­ara­meist­ari og for­seti bæj­ar­stjórn­ar Árborg­ar, og Al­dís Haf­steins­dótt­ir sveit­ar­stjóri Hruna­manna­hrepps voru álits­gjaf­arn­ir að sinni og voru sam­mála um að um mjög spenn­andi kosn­ing­ar væri að ræða.
May 15, 2024
1 hr 23 min
#28 Patreksfjörður - Með heilan spítala í fanginu
Rebekka Hilmarsdóttir og maður hennar, Örn Hermann Jónsson, tókust á hendur það verkefni árið 2014 að gera upp gamla spítalann á Patreksfirði sem reistur var á Geirseyrinni árið 1901. Þau standa enn í þeim stórræðum og halda því reyndar fram að verkefninu muni sennilega aldrei ljúka. Morgunblaðið tók hús á þeim á kyrrlátu kvöldi við fjörðinn.
May 11, 2024
26 min
#27 - Egilsstaðir Halla Hrund Logadóttir
Hátt í tvö hundruð manns sóttu líf­leg­an borg­ar­a­fund Morg­un­blaðsins með Höllu Hrund Loga­dótt­ur for­setafram­bjóðanda í fé­lags­heim­il­inu Vala­skjálf á Eg­ils­stöðum. Halla Hrund sagði á fund­in­um að kannski væri sjald­an meiri þörf en nú að velja for­seta sem myndi leggja sig fram við að sam­eina þjóðina. Blaðamenn­irn­ir Andrés Magnús­son og Stefán Ein­ar Stef­áns­son spurðu Höllu Hrund um fram­boðsáhersl­ur henn­ar til embætt­is for­seta Íslands og þá fengu fund­ar­gest­ir tæki­færi til að spyrja Höllu spurn­inga.
May 7, 2024
1 hr 13 min
#26 Hallormsstaðaskógur - Alltaf að baksa í moldinni
Fyrir Bergrúnu Örnu Þorsteinsdóttur aðstoðarskógarvörð í Hallormsstaðaskógi kom fátt annað til greina en að vinnaí umhverfi þar sem tengslin við náttúruna eru mikil. Það hefur hún gert síðan sumarið 1987 og unir hag sínum vel.
May 5, 2024
34 min
Load more