Show notes
Frambjóðendur fjögurra lista í Skagafirði eru sammála um að fjölgun íbúa sé eitt stærsta verkefni sveitarfélagsins á komandi kjörtímabili. Þeir greinir hins vegar á um hvernig best sé að ná því markmiði, hvernig halda eigi utan um framkvæmdir og hvort sveitarfélagið hafi farið of geyst í stór verkefni.
Í Skagafirði búa tæplega 4.500 manns, flestir á Sauðárkróki, en þéttbýli er einnig á Hofsósi, Hólum í Hjaltadal og í Varmahlíð. Í kosningunum 2022 fengu Framsóknarflokkurinn þrjá fulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn tvo, Byggðalistinn tvo og Vinstri græn tvo. Nú leiða Einar Öðvald Einarsson B-lista Framsóknar, Magnús Bardal D-lista Sjálfstæðisflokks, Eyþór Fannar Sveinsson L-lista Byggðalistans og Högni Elvar Gylfason M-lista Miðflokksins.

