X26 Sveitarstjórnarkosningar
X26 Sveitarstjórnarkosningar
Ritstjórn Morgunblaðsins
X26 - Reykjanesbær: vaxtaverkir bæjarfélagsins
1 hour 14 minutes Posted May 12, 2026 at 4:00 pm.
0:00
1:14:21
Download MP3
Show notes

Oddvitar framboða í Reykjanesbæ eru sammála um að bærinn hafi vaxið of hratt á undanförnum árum. Mikill vöxtur, uppbygging innviða, húsnæðismál, atvinnuþróun, málefni hælisleitenda og framtíð Þróunarfélagsins Kadeco voru meðal helstu umræðuefna í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is.

Í kappræðunum mættu Arnar Páll Guðmundsson fyrir Viðreisn, Guðný Birna Guðmundsdóttir fyrir Samfylkinguna, Vilhjálmur Árnason fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Rúnar Fossadal Árnason fyrir Miðflokkinn og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn.

Í upphafi voru frambjóðendur spurðir hvort Reykjanesbær hefði stækkað of hratt. Allir svöruðu því játandi. Fram kom að íbúum bæjarins hefur fjölgað um 64% frá árinu 2014 og að um 35% íbúa eru af erlendum uppruna.