Skiptar skoðanir eru meðal oddvita í Garðabæ um Borgarlínu, uppbyggingu, fasteignagjöld og mögulegt samstarf eftir kosningar. Þetta kemur fram í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is þar sem frambjóðendur sex lista í Garðabæ tókust á um stöðu bæjarins og næstu verkefni.Í kappræðunum mættu Kjartan Atli Kjartansson fyrir Samfylkinguna, Hlynur Bæringsson fyrir Framsókn, Guðlaugur Kristmundsson fyrir Viðreisn, Almarr Guðmundsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Lárus Guðmundsson fyrir Miðflokkinn og Þorbjörg Þorvaldsdóttir fyrir Garðabæjarlistann.Garðabær hefur verið eitt ört vaxandi sveitarfélag landsins á undanförnum árum og voru frambjóðendur spurðir hvort bærinn hefði vaxið of hratt. Lárus Guðmundsson svaraði því játandi en aðrir frambjóðendur töldu svo ekki vera.

