Show notes
Fjármál Kópavogsbæjar, Kópavogsmódelið í leikskólamálum og samgöngusáttmálinn eru á meðal helstu átakapunkta í Kópavogi. Oddvitar fimm stærstu framboðanna í Kópavogi takast á í myndveri Morgunblaðsins í Hádegismóum.
Orri Vignir Hlöðversson, oddviti Framsóknarflokksins, María Ellen Steingrímsdóttir, oddviti Viðreisnar, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar, og Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins takast á um stóru málin en þeir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson stýra umræðunum.

