Show notes
Oddvitar fjögurra framboða í Árborg takast á í myndveri Morgunblaðsins. Fjármál sveitarfélagsins, álögur á íbúa og fyrirtæki, uppbygging innviða, leikskólamál, atvinnuþróun og framtíð byggðanna við ströndina eru á dagskrá.
Matthías Bjarnason Framsóknarflokki, Heiðrún Kristmundsdóttir frá Viðreisn, Sigurjón Vídalín Samfylkingu og bæjarstjórinn Bragi Bjarnason fyrir Sjálfstæðisflokk mætast en þær Andrea Sigurðardóttir og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir stýra umræðunum.

