Í Eyjafjarðarsveit er mikil ásókn í lóðir og húsnæði en oddvitar beggja framboðslista í sveitarfélaginu leggja áherslu á að vöxturinn verði ekki of hraður.
Þeir segja mikilvægt að innviðir fylgi íbúafjölguninni og að samfélagskenndin haldist.Sveitarfélagið er sjálfstætt, með um 1.200 íbúa, og varð til 1. janúar 1991 við sameiningu Hrafnagilshrepps, Öngulsstaðahrepps og Saurbæjarhrepps.
Það nær yfir sveitirnar inn af Eyjafirði og teygir sig upp á Sprengisand. Eyjafjarðarsveit er um 1.775 ferkílómetrar að stærð og er Hrafnagilshverfið þungamiðja byggðarinnar.Í síðustu kosningum buðu tveir listar fram.
F-listinn fékk 338 atkvæði og fjóra fulltrúa en K-listinn 235 atkvæði og þrjá fulltrúa. Hermann Ingi Gunnarsson, oddviti F-listans, og Guðmundur Sigurbjörn Óskarsson, oddviti K-listans, segja samvinnu meiri- og minnihluta hafa einkennt kjörtímabilið.

