Víðsjá
Víðsjá
RÚV
Saumó og Bifreiðarstöð Oddeyrar
51 minutes Posted Aug 31, 2026 at 4:05 pm.
0:00
51:05
Download MP3
Show notes
Sýningin Saumó er hluti af sýningaröðinni Heimsókn á Hönnunarsafni Íslands og er viðfangsefnið hlutverk og form saumaklúbba nú á tímum. En á sýningunni upplifa gestir sig sem „flugu á vegg“ og fá að gægjast inn í ólíka klúbba. Katla Einarsdóttir, grafískur hönnuður, er sýningarstjóri Saumó en hún hefur áður rannsakað viðhorf til hönnunar, handverka og föndurs. Við ræðum við Kötlu í þættinum.
Áki Frostason, listamaður og tónlistarmaður, lagði, í sumar, legstein við gömlu BSO-lóðina við Strandgötu á Akureyri en nýlega var Bifreiðastöð Oddeyrar á Akureyri gert að víkja þar af lóðinni þar sem hún hafði staðið í um 70 ár. Við ræðum við Áka um gjörninginn.