Show notes
Það er ekki á hverjum degi sem nær óþekktur listamaður uppgötvast í íslensku samfélagi. Hvað þá maður sem setur mark sitt á listasöguna með einkennandi abstraktverkum sem hann vann í einrúmi í nær fjóra áratugi. Í kvöld opnar í Hafnarborg einkasýning Frosta Fjalars, Bjarmaband. Sýningin veitir innsýn í ævistarf listamannsins, sem hefur verið flestum hulið, þar til nú. Við ræðum við Ásdísi Spanó, sýningarstjóra, og listsagnfræðinginn Aðalstein Ingólfsson í Víðsjá dagsins.Kviss Búmm Bang er framandverkahópur sem hefur það að markmiði að rannsaka eðlileikann, hvað er eðililegt og hvað ekki, í þeirri von að fá fólk til þess að vera meðvitaðri um sinn eigin raunveruleika. Kviss Búmm Bang verða með innsetningu á Hamraborg festival um helgina sem nefnist Hvernig líður gagnkynhneigðum? Við ræðum við Vilborgu Ólafsdóttur eina af meðlimum Kviss Búmm Bang í þættinum.En við byrjum á verðlaunum. Í gærkvöldi birtist á miðlunum tilkynning um væntanlegan verðlaunahafa hinna Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness en í ár er það rithöfundurinn Olga Tokarczuk.

