Víðsjá
Víðsjá
RÚV
Svipmynd af Magnúsi Jóhanni
50 minutes Posted Sep 1, 2026 at 4:05 pm.
0:00
50:50
Download MP3
Show notes
Í þætti dagsins spjöllum við við tónlistarmanninn Magnús Jóhann Ragnarsson sem hefur getið sér gott orð í tónlistarsenu þessa lands fyrir eigin verk og sem meðleikari margra. Hann stendur nú fyrir stórtónleikum í Háskólabíói sem fara fram 17. september en þar fagnar hann 30 ára afmæli og tíu ára starfsafmæli sem tónlistarmaður.
Á tónleikunum verður mörgu af helsta samstarfsfólki Magnúsar smalað saman og leikin lög sem spanna allan feril hans. Magnús og GDRN munu leika lög af geysivinsælum dægurlagaplötum sínum, þungavigtarmenn úr djassheiminum munu láta sjá sig og flytja lög af rómuðum samstarfsplötum. Magnús mun einnig flytja ný lög og gömul einn síns liðs, vopnaður hljóðgervlum af ýmsum toga