
Freyja Þórsdóttir fjallar í pistli sínum um viðkvæmni og styrk út frá ólíkum sjónarhornum. Það sem virðist viðkvæmt eða sterkt við fyrstu sýn getur fengið á sig annan blæ í víðara samhengi. Til dæmis þegar það er skoðað gegnum linsu djúptíma. Með þetta í huga lítur hún meðal annars til máttarins sem býr í blómum.
Vala Sigþrúðar Jónsdóttir, myndlistarmaður, kom við á sýningunni Himnu í Norræna húsinu og flytur hún rýni um sýninguna í þættinum.
Tumi Árnason, tónlistarmaður, ferðaðist yfir fjöllin til Hveragerðis og heimsótti hátíðina Hverafugl sem fór fram um síðustu helgi og mun hann gefa okkur skýrslu af sinni upplifun.
Við hringjum til útlanda og heyrum í íslenskum rithöfundi sem var að senda frá sér sína fyrstu skáldssögu. Vilhjálmur Pétursson á sigurbók Nýrra radda hjá Forlaginu og nefnist hún Harðindi og segir frá ævintýrum manns og merar í martraðarkenndum eftir-heimsenda-veruleika hér á Íslandi.
Jul 2
53 min

Í Víðsjá dagsins komum við okkur fyrir í betri stofunni á Gljúfrasteini ásamt tónlistarmanninum Davíð Þór Jónssyni og ræðum, í sérstökum aukaþætti Aldrei las ég Laxness, um tónlist innan og í kringum verk Halldórs Laxness, sem og; eðli og tengsl ritlistar, tónlistar, hversdagsleikans og tilverunnar. Einnig verður leikið á flygilinn beint upp úr textum Halldórs og snert á sönglögum sem samin hafa verið við kvæði hans.
Jul 1
50 min

Í þættinum hugum við að brasilísku tónskáldi sem féll frá síðasta haust, Hermeto Pascoal, en Jazzklúbburinn Múlinn hefur boðað til tónleikatvennu nú á þriðjdag og miðvikudag þar sem leikin verða lög eftir þetta ólíkindatól. Tónleikarnir hafa yfirskriftina Viva Hermeto! og er þar markmiðið að fagna lífi hans, en á dagskránni má heyra ýmsar gerðir brasilískra tónstíla á borð við; samba, choro, baiao, maracatu, marcha og frevo. Sigmar Þór Matthíasson, tónlistarmaður, er í forsvari fyrir þessa tónleika og ræðir við okkur um Hermeto.
Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, endar syrpu sína um íslenska ljóðlist miðalda í dag með Jóni Arasyni Hólabiskup. Jón orti um píslarsögu Krists en átti svo sjálfur eftir að upplifa að vera leiddur til aftöku.
Undir lok þáttar kynnum við okkur síðan nýja plötu frá bandaríska tónlistarmanninum Jeff Parker og IVets hans sem nefnist Happy Today.
Jun 29
54 min

Umbreyting eða Layover er sýning í Biðstofu Nýlistarsafnsins sem verður opnuð gestum og gangandi nú klukkan sex í Marshall húsi. Umbreyting er í senn sýning, sem og opin vinnustofa þar sem þau Agnes Ársælsdóttir og Helena Sólveigar Aðalsteinsbur vinna hörðum höndum að því að skrásetja gjörninga í gjörningaarkíf Nýlistarsafnsins en sýningin rekur einnig slóð hugmynda og listamanna sem hafa ferðast lengi eða komið stuttlega við á Íslandi og valdið óróa, hlátri eða hneykslun. Við gerum okkur ferð í Nýlistarsafnið.
Við hugum einnig að örlögum Dugguvogs 42 en til stendur að rífa bygginguna til að koma fyrir tímabundinni hjáleið fyrir umferð á meðan framkvæmdir við Sæbrautarstokk standa yfir. Á byggingunni eru hins vegar verðmæt steypt lágmyndarverk listamannsins Gerðar Helgadóttur frá árunum 1971 til 1972. Við veltum fyrir okkur örlögum hússins og verðmætum verkanna í þættinum.
Að lokum rifjum við upp innslag um breiðskífu írsku tónlistarkonunnar Lisu O'Neill, All of This is Chance.
Jun 25
53 min

Við mælum okkur mót við meðlimi tríósins Brenninetlu; hljómsveit sem leikur djass og frjálsan spuna, en sækir líka áhrif í ýmsar aðrar áttir. Brenninetla lenti í örðu sæti í Músíktilraunum nú í vor og vinnur nú hörðum höndum að gerð sinnar fyrstu breiðskífu. En þeir félagar munu koma fram á tónleikum í Jazz Sunday Reykjavík tónleikaröðinni í Iðnó nú á sunnudag. Við ræðum við tríóið í þættinum.
Gauti Kristmannsson bókmenntarýnir fjallar um þýðingu á bókinni Villistrákum eftir bandaríska rithöfundinn Williams S. Burroughs en hún segir frá dulrænum skæruher hömlulausra hinseginn ungmenna sem segja siðmenningu Vesturlanda stríð á hendur.
Og að gefnu tilefni rifjum við upp umfjöllun um tónlistarmanninn Henry Threadgill og heyrum af óþægilegum samskiptum hans við Sikileysku mafíuna.
Jun 23
51 min

Marta María Jónsdóttir, rithöfundur og myndlistamaður, sendi frá sér skáldsögu nú á dögunum sem nefnist Fuglamál. Bókin er fjölskyldusaga sem segir frá ungu pari sem eignast nokkuð óvenjulegt barn, Ídu, sem talar tungum, fer í undarleg flogaköst og á sér ímyndaðan vin, fuglinn Pótó. Við ræðum við Mörtu Maríu um Fuglamál í þætti dagsins.
Haukur Þorgeirsson rannsóknarprófessor fjallar um horfnu systurþjóð okkar Grænland og þá sérstaklega skáldskaparlistina sem þar var stunduð fyrr á öldum.
Í lok þáttar rifjum við upp erindi frá árinu 2024 um huldutónlistarmanninn G. Weller.
Jun 22
52 min

Hverafugl kallast ný hátíð sem sett verður í Hveragerði í næstu viku. Þar hafa listrænir stjórnendur, þau Halldór Smárason, Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir og Lilja María Ásmundsdóttir stefnt saman tónlistarfólki úr ólíkum kimum tónlistarsenunnar. Hátíðin hefur verið lengi í undirbúningi með heimafólki og hluti efnisskránnar er tónlist tengd svæðinu en tónleikar munu einnig spretta upp á óvæntum stöðum um bæinn. Við ræðum við Ingibjörgu Ýr í þættinum.
Arnhildur Pálmadóttir var útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur þetta árið við hátíðlega athöfn í Höfða í gær, og mun það vera í fyrsta sinn sem arkitekt hlotnast sá heiður. Við höfum átt nokkur góð samtöl hér í þættinum við Arnhildi í gegnum tíðina, og við rifjum upp brot úr einu slíku.
Stomp Clap Hey er hugtak yfir tónlistarfyrirbæri sem netverjar keppast nú um að skilgreina sem og að stimpla tiltekna listamenn með. Þetta á við um tónlist sem sækir í akústísk hljóðfæri, kassagítara, kontrabassa, bongótrommur, tambúrínur og þar fram eftir götunum og einkennast lög, sem tilheyra þessari tónlistarstefnu, gjarnan af stappi, klappi og samsöng þar sem orðið hey er kallað inn í tónlistina. Við tökum tónlistarfræðinginn Arnar Eggert Thoroddsen tali um þessa nýju en á sama tíma gömlu tónlistarstefnu.
Jun 18
50 min

Um næstu helgi verður opnuð sýning á Kjarvalsstöðum; Smáborg, háborg –Reykjavík í mynd. Þetta er yfirlitssýning á verkum sem endurspegla Reykjavíkurborg frá sjónarhorni listamanna á því 240 ára tímabili sem hún hefur verið til sem kauptún. Við gerum okkur ferð á Kjarvalsstaði í þættinum og náum tali af sýningarstjórunum þeim Markúsi Þór Andréssyni, Sigurði Trausta Traustasyni og Sunnu Ástþórsdóttur.
Freyja Þórsdóttir fjallar í pistli dagsins um listagyðjuna, innblástur, andatrú og ævintýri. Við sögu koma myndlistarkonan Tracy Emin og rithöfundurinn Astrid Lindgren.
Einnig kynnum við okkur sýningu á ævistarfi Hallsteins Sigurðssonar á vinnustofu hans í Ystaseli 37. Sýningin kallast Endurlit og þar gefur að líta ólík verk úr áli, járni og steinsteypu ásamt skissum, heimildum og áður óséðu efni sem varpa ljósi á hugmynda vinnu og efnisrannsóknir. Það er Myndhöggvarafélagið í samstarfi við minningarsjóð Hallsteins og Listahátíð í reykjavík sem standa að sýningunni og sýningarstjórar eru Sean Patrick O’Brien og Ólöf Bóadóttir. Við ræðum við Ólöfu í þættinum.
Jun 16
52 min

Í Hvelfingu Norræna hússins stendur yfir sýningin Himna; Goðsagnir & skáldskapur úr jörðu. Sýningin er samsýning átta listamanna sem koma víðsvegar að en verk þeirra skoða endurnýjun jarðvegs sem grundvallarferli sem gerir jörðina byggilega og lífi kleift að kvikna, dafna og endurnýja sig. Í þætti dagsins gerum við okkur ferð í Norræan húsið og tökum sýningarstjórann Thomas Pausz tali um Himnu.
Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, segir okkur frá skáldunum sem sömdu Íslendingasögurnar og endar á Njáls sögu. Var höfundurinn einhver frændi Snorra Sturlusonar - eða kannski frænka hans?
Gallerí Kichin var stofnað af þeim Skúla Thayer og Silju Rún Högnadóttur en upphafi miðaðist galleríið við eina óræða mublu sem þau fundu í Góða hirðinum. Mublan fékk heimili í vinnustofu þeirra í Listaháskólanum og með tímanum umbreyttist hún í sýningarrými. Í fyrra fór Kichin svo í samstarf við listahátíð í Reykjavík og úr urðu sex sýningar sem hófu göngu sína við upphaf listahátiðar og opna með viku millibili fram í júlí. Í þættinum lítum við inn í Kling og Bang og fáum að heyra af verkefninu.
Jun 15
50 min

Í þættinum sláum á þráðinn til Flateyjar og ræðum við, rithöfundinn og bókaútgefandann, Ragnar Helga Ólafsson sem siglir þar milli eyja, klifrar í klettum og vitjar fugla með fuglafræðingum.
Við kynnum einnig til leiks nýjan myndlistarrýni. Vala Sigþrúðar Jónsdóttir verður reglulega með okkur fram á sumarið og næsta vetur, og deilir með okkur upplifun sinni af sýningum sem okkur þykja einstaklega spennandi. Í dag heyrum við af sýningu sem sett var upp í Nýlistasafninu í tengslum við Listahátíð. Hún kallast Óður til gleðinnar og að baki henni stendur úkraínski listahópurinn Open Group.
Við hugum einnig að Tónlistarhátíðinni Við Djúpið. Hátíðin hefst í næstu viku á Ísafirði og að vanda verður flutt fjölbreytt klassísk tónlist úr ólíkum áttum. Greipur Gíslason er stjórnandi hátíðarinnar í ár og Sæunn Þorsteinsdóttir er listrænn stjórnandi. Við ræðum við Greip um hátíðinaí þættinum.
Jun 11
51 min
Load more
