X26 Sveitarstjórnarkosningar
X26 Sveitarstjórnarkosningar
Ritstjórn Morgunblaðsins
X26 - Listakosning í Árneshreppi í fyrsta sinn í nær sjö áratugi
20 minutes Posted Apr 23, 2026 at 8:37 am.
0:00
20:19
Download MP3
Show notes

Árneshreppur á Ströndum stendur frammi fyrir tímamótum þegar gengið verður til sveitarstjórnarkosninga í vor. Í fyrsta sinn síðan árið 1958 verður kosið milli framboðslista í þessu nyrsta sveitarfélagi Strandasýslu, þar sem íbúarnir eru aðeins 63 talsins.

Tveir listar eru í framboði, Á-listi Framtíðar Árneshrepps og S-listi Sólstaða, og virðist ljóst að ólík sjónarmið um sameiningu sveitarfélaga hafi orðið til þess að kosningarnar taka á sig skýrari pólitíska mynd en áður.Arinbjörn Bernharðsson, oddviti S-lista Sólstaða, segir að þrátt fyrir fámennið sé sveitarfélagið bæði landmikið og söguríkt.

Þar hafi á fyrri öldum átt sér stað stórir atburðir, allt frá galdrabrennum á 17. öld til Flóabardaga árið 1244. Þá hafi sildarárin á fyrri hluta 20. aldar markað djúp spor, þegar umsvifin í Djúpavík og Ingólfsfirði voru slík að í hreppnum bjuggu um 500 manns.