Sveitarstjórnarkosningarnar í Stykkishólmi snúast að verulegu leyti um jafnvægið milli áframhaldandi uppbyggingar og aðhalds í rekstri. Það kom fram í viðtali við oddvita H-lista framfarasinnaðra Hólmara, Björn Ásgeir Sumarliðason, og oddvita Í-lista Íbúalistans, Sigurð Grétar Jónasson, þar sem farið var yfir stöðu bæjarins, helstu áskoranir og áherslur fyrir komandi kjörtímabil.
Stykkishólmur, sem varð til í núverandi mynd við sameiningu Stykkishólms og Helgafellssveitar árið 2022, er lítið en öflugt sveitarfélag með um 1.350 íbúa. Atvinnulíf byggist einkum á opinberri þjónustu, ferðaþjónustu, landbúnaði og matvælaframleiðslu.
Í síðustu kosningum fékk H-listinn fjóra fulltrúa gegn þremur fulltrúum Íbúalistans og hefur farið með stjórn sveitarfélagsins síðustu átta árin.

