Skólamál, húsnæðisuppbygging og samgöngur voru meðal helstu umræðuefna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is í Ísafjarðarbæ vegna sveitarstjórnarkosninganna. Fimm oddvitar framboðanna í bænum komu þar saman og kynntu áherslur sínar fyrir komandi kjörtímabil.
Frambjóðendur voru almennt sammála um að sveitarfélagið stæði frammi fyrir miklum vaxtarverkefnum, ekki síst í skólamálum, þar sem bæði leik- og grunnskólar væru undir þrýstingi. Einnig var rætt um skort á lóðum, þörf fyrir frekari íbúðauppbyggingu og mikilvægi þess að bæta tengsl milli Ísafjarðar og annarra byggðakjarna sveitarfélagsins.
Samgöngumál komu einnig mikið við sögu, sérstaklega staða flugs til Ísafjarðar og þörfin fyrir betri vegasamgöngur. Þá var rætt um stjórnsýslu sveitarfélagsins, fasteignagjöld, Airbnb og mögulegt meirihlutasamstarf að kosningum loknum.
Framboðin sendu oddvita sína til leiks í Edinborgarhúsinu. Framsóknarflokkurinn: Kristján Þór Kristjánsson, Miðflokkurinn: Sævar Óli Hjörvarsson, Sjálfstæðisflokkurinn: Jónas Þór Birgisson, Viðreisn: Gylfi Ólafsson, Samfylkingin: Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir.Fundarstjórar voru Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson.

