Vesturbyggð stendur á tímamótum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Sveitarfélagið, sem varð formlega til í núverandi mynd 1. júní 2024 við sameiningu við Tálknafjarðarhrepp, hefur á síðustu árum tekið miklum breytingum.
Atvinnulíf hefur styrkst, ekki síst með uppbyggingu fiskeldis, en um leið glímir sveitarfélagið við skuldastöðu, brothætta innviði, húsnæðisskort og ágreining um hvernig tryggja eigi framtíðarsókn í orkumálum.Tvö framboð takast á í kosningunum.
Annars vegar N-listi Nýrrar sýnar undir forystu Þórkötlu Soffíu Ólafsdóttur og hins vegar nýr V-listi Sterkari Vesturbyggðar, leiddur af Hlyni Ársælssyni. D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra, sem fékk þrjá fulltrúa í aukakosningunum fyrir tveimur árum, býður ekki fram að þessu sinni.

