X26 Sveitarstjórnarkosningar
X26 Sveitarstjórnarkosningar
Ritstjórn Morgunblaðsins
X26 - Ólík sjónarmið í Hvalfjarðarsveit
47 minutes Posted Apr 22, 2026 at 1:00 am.
0:00
47:27
Download MP3
Show notes

Tekjustofnar, Grundartangi og samfélagið í forgrunni í Hvalfjarðarsveit

Kosningabaráttan í Hvalfjarðarsveit mótast af stórum spurningum um sjálfstæði sveitarfélagsins, tekjustofna þess, atvinnuuppbyggingu og hvernig íbúar komi að ákvörðunum um framtíðarskipan svæðisins. Það kom skýrt fram í viðtali við oddvita A-lista Samhentrar sveitar, Harald Benediktsson, og oddvita Íbúahreyfingarinnar, Þóru Margréti Júlíusdóttur, þar sem einnig bar á ágreiningi um orðræðu og samskipti í aðdraganda kosninga.Hvalfjarðarsveit varð til árið 2006 við sameiningu fjögurra hreppa og telur nú ríflega 800 íbúa. Sveitarfélagið er víðlent, með öflugan landbúnað, vaxandi íbúabyggð og eitt mikilvægasta atvinnusvæði landsins á Grundartanga, þar sem um 1.100 manns starfa. Þar hefur byggst upp fjárhagslegur styrkur sveitarfélagsins, en um leið orðið til álitamál um framtíðina.