X26 Sveitarstjórnarkosningar
X26 Sveitarstjórnarkosningar
Ritstjórn Morgunblaðsins
X26 - Tekist á um uppbyggingu og framtíðarsýn í Ölfusi
1 hour 2 minutes Posted Apr 21, 2026 at 6:00 am.
0:00
1:02:17
Download MP3
Show notes

Kosningabaráttan í Ölfusi mótast mjög af örum vexti sveitarfélagsins, mikilli uppbyggingu og ágreiningi um það hvernig best sé að stýra samfélagi sem er að taka stakkaskiptum.

Það kom skýrt fram í samtali við oddvita tveggja framboða sem nú bjóða fram í sveitarfélaginu, þá Grétar Inga Erlendsson fyrir D-lista Sjálfstæðisflokksins og Gunnstein R. Ómarsson fyrir lista Samfylkingarinnar og óháðra.Ölfus hefur stækkað hratt á undanförnum árum.

Í sveitarfélaginu búa nú 3.062 íbúar og hefur þeim fjölgað um ríflega 500 á yfirstandandi kjörtímabili. Gangi spár eftir gæti íbúafjöldinn farið í 4.500 á næsta kjörtímabili. Fram undan eru því stór verkefni, bæði í innviðauppbyggingu, skipulagi og þjónustu.