Show notes
Rangárþing ytra gengur til sveitarstjórnarkosninga í vor með stór verkefni í farangrinum, traustan rekstur að mati meirihlutans og skýran áherslumun milli framboðanna um forgangsröðun næstu ára. Sveitarfélagið, sem varð til 9. júní 2002 við sameiningu Rangárvallahrepps, Holta- og Landssveitar og Djúpárhrepps, er eitt af tíu stærstu sveitarfélögum landsins að flatarmáli, en íbúar eru þó aðeins ríflega tvö þúsund.
Kosningarnar lofa spennu, enda munaði aðeins ellefu atkvæðum á listunum tveimur árið 2022. Á-listinn fékk þá 493 atkvæði og fjóra fulltrúa, en D-listi Sjálfstæðisflokksins 482 atkvæði og þrjá fulltrúa. Sömu oddvitar leiða listana nú, þeir Eggert Valur Guðmundsson fyrir Á-lista og Ingvar Pétur Guðbjörnsson fyrir D-lista.

