Show notes
Í þætti dagsins ræðum við við Þórð Sævar Jónsson, þýðanda og skáld, um þýðingu sem hann var að senda frá sér á skáldsögu bandaríska rithöfundarins Richard Brautigans, Suðurríkjaherforingi frá Big Sur.Haukur Þorgeirsson fer með okkur aftur til hins kaþólska Íslands og heyrum við brot úr Katrínardrápum og öðrum kvæðum um heilagar meyjar. Við sláum einnig á þráðinn austur á Höfn í Hornafjörð en þar opnaði nýverið sýningin Hlýja og handverk í Svavarssafni þar sem gefur að líta verk eftir kennarann og handverkskonuna Margot Gamm en hún auðgaði líf menningarlíf Hornarfjarðar með listfengi sínu í áratugi.

