Víðsjá
Víðsjá
RÚV
Forvitin rauð á Hönnunarmars, Freyja heimspekipistill, Innblástur-rýni
50 minutes Posted May 5, 2026 at 4:05 pm.
0:00
50:03
Download MP3
Show notes
Síðastliðin misseri hafa tveir grafískir hönnuðir, þær Hólmfríður Benediktsdóttir og Una María Magnúsdóttir kafað ofan í heim tímaritsins Forvitin rauð, málgagn íslensku rauðsokkahreyfingarinnar. Tímaritið kom út einu sinni til tvisvar á ári frá 1972 til 1982, og voru umfjöllunarefnin jafnréttismál, stjórnmál og bókmenntir. Þær Hólmfríður og Una María opna sýningu á afrakstri rannsóknarvinnu sinnar á Hönnunarmars og þær segja frá vinnunni og áhrifum kvenna sem prenta saman í þætti dagsins.
Trausti Ólafsson rýnir í Innblástur og Freyja Þórsdóttir veltir fyrir sér mikilvægi tungumálsins og sannleikans, m.a. í samhengi við tímana sem við lifum og einkennast af upplýsingaóreiðu, tíma eftirsannleikans.