Show notes
Víðsjá hefst að sinni í Gerðarsafni þar sem yfirlitssýning á verkum Valgerðar Briem opnar annað kvöld. Cecilie Gaihede sýningarstjóri og Brynja Sveinsdóttir safnstjóri sögðu frá sýningunni og rannsókninni sem liggur að baki. Vala Sigþrúðardóttir Jónsdóttir kíkti á sýningu Joe Keys og Svövu Björnsdóttur, Glundroða, í heimagalleríinu 1.h.v. að Lönguhlíð 19 og rýnir í sýninguna í myndlistarpistli sínum.Þá leggur Halldór Guðmundsson rithöfundur línurnar fyrir bókaklúbbinn Aldrei las ég Laxness sem heldur áfram á miðvikudag. Halldór segir frá högum Halldórs á 4. áratug síðustu aldar þegar hann er að skrifa sín stærstu verk og forvitnast er um aðdraganda skáldsögunnar Heimsljóss sem verður á dagskrá bókaklúbbsins í Víðsjá á morgun.

