Seinni níu
Seinni níu
Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
#116 - Aron Snær fékk áttu á par3 holu en vann samt mótið
1 hour 3 minutes Posted Jun 15, 2026 at 11:26 pm.
0:00
1:03:32
Download MP3
Show notes

Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara, Aron Snæ Júlíusson, í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þessi tæplega þrítugi kylfingur varð Íslandsmeistari 2021 á Akureyri og svo aftur 2024 á Hólmsvelli í Leiru á mótsmeti eða 16 höggum undir pari.

Hann hefur verið sjóðheitur að undanförnu og unnið fyrstu þrjú mótin á GSÍ-mótaröðinni. Aron verður hins vegar ekki með á Íslandsmótinu í holukeppni um næstu helgi en hann er að fara sem áhorfandi á Opna bandaríska meistaramótið þar sem félagi hans úr GKG, Gunnlaugur Árni Sveinsson, mun fyrstur Íslendinga taka þátt í mótinu.

Opna bandaríska fær gott pláss í þættinum en við förum um víðan völl í spjalli okkar við Aron. Hann segir okkur aðeins frá því hvernig hann byrjaði í golfi. Við tökum stöðuna á ferli Arons sem atvinnumaður og svo segir Aron okkur frá því hvernig honum tókst að leika nokkuð stutta par3 braut á 8 höggum en standa samt uppi sem sigurvegari.

Mjög áhugaverður og skemmtilegur þáttur með einum besta kylfingi Íslands.