Seinni níu
Seinni níu
Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
#115 - Fannar þrífst á skömmum á golfvellinum
1 hour 5 minutes Posted Jun 7, 2026 at 11:34 pm.
0:00
1:05:37
Download MP3
Show notes

Við fengum körfuboltamanninn fyrrverandi, Fannar Ólafsson, í heimsókn í Seinni níu. Fannar var liðsfélagi Loga í Ion golfmótinu sem við stóðum að núna á dögunum og gekk á ýmsu hjá þeim félögum. Það var svo sannarlega glatt á hjalla.

Fannar er með 26 í forgjöf. Hann er kraftagolfari og slær yfirleitt betur þegar hann fær að heyra það frá meðspilurum sínum.

Við fáum stórskemmtilega kraftröðun hjá Fannari og draumahollið er á sínum stað. Við komum víða við í þættinum og ræðum meðal annars aðkomu Fannars að Körfboltakvöldi sem lyfti umfjöllun á íslenskum körfuknattleik til mikilla muna.

Í þættinum greinir Fannar líka frá sex vikna sjúkralegu sinni eftir að hafa fengið sýkingu í annan fótlegg eftir slys í hesthúsi.

Frábær þáttur á sérstaklega léttum nótum.