Seinni níu
Seinni níu
Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
#117 - Gunnu Dís er farið að dreyma um golf á nóttunni
1 hour 12 minutes Posted Jun 23, 2026 at 12:41 am.
0:00
1:12:27
Download MP3
Show notes

Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu, því útvarps- og sjónvarpsstjarnan Guðrún Dís Emilsdóttir tók sig til og ræddi við okkur um golf. Hún byrjaði af krafti í golfíþróttinni fyrir örfáum árum og er hreinlega farin að dreyma um golf á nóttunni.

Gunna Dís er með 37 í forgjöf, er meðlimur í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og leikur talsvert golf yfir sumartímann. Það er margt við golfíþróttina sem hefur komið henni á óvart og fer hún yfir það í skemmtilegri kraftröðun. Sömuleiðis kemur hún með mjög skemmtilegt draumaholl.

Við komum víða við í þættinum. Meðal annars kemur í ljós að Gunna hélt vitlaust á kylfunni allt síðasta sumar. Hún notar einnig 7-tré mikið í kringum flatirnar með frekar sérstökum hætti.

Frábær þáttur þar sem við förum yfir Opna bandaríska meistaramótið og þátttöku Gunnlaugs Árna í mótinu.