Seinni níu
Seinni níu
Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
#101 - Oddur var óvænt með 1,9 í forgjöf
1 hour 16 minutes Posted Mar 3, 2026 at 12:27 am.
0:00
1:16:12
Download MP3
Show notes

Við fengum frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Oddur Þórðarson, fréttamaður á RÚV, kom í heimsókn til okkar og það kom okkur skemmtilega á óvart hversu hversu öflugur hann er í golfi.

Oddur er með 7 í forgjöf og er að eigin sögn góður í að redda sér í kringum flatirnar. Hann byrjaði ungur í golfi og ólst upp á Korpúlfsstaðavelli. Um tíma vann Oddur einnig á Korpunni sem golfvallastarfsmaður og hefur verið meðlimur í GR lengi.

Í þættinum er komið víða við en það stóð upp úr þegar Oddur valdi fimm bestu og fimm verstu merki golfklúbba landsins. Þar kom ýmislegt forvitnilegt í ljós og svigrúm til bætinga hjá mörgum golfklúbbum landsins.

Frábær þáttur að venju og á sérstaklega léttum nótum.