Það var mjög létt yfir okkur í Seinni níu og við fengum bæjarstjórann á Seltjarnarnesi, Þór Sigurgeirsson, í heimsókn til okkar. Þetta er þáttur númer 100 af Seinni níu og var auðvitað aðeins farið yfir þau tímamót.
Þór er þokkalegur kylfingur með 22,2 í forgjöf en sér fram á að forgjöfin geti lækkað eftir að hafa fengið nýjar mjaðmir. Þór er auðvitað í Nesklúbbnum og er þar í virku samtali við kjósendur, bæði þá sem eru í golfi og svo þá vegfarendur sem hefur verið mjög nálægt því að slá í við Nesvöllinn.
Í þættinum er komið víða við en Þór rekur skemmtilega tilkomu golftryggingar sem Vörður hefur selt á undanförnum árum. Þór var lengi starfsmaður hjá Verði áður en hann varð bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og fór yfir það tjón sem tryggingafélagið varð fyrir þegar margir af vinum Þórs byrjuðu að fara holu í höggi.
Draumahollið er á sínum stað og svo fáum við undarlega kraftröðun á bestu golfvöllunum sem Þór hefur leikið. Einnig segir bæjarstjórinn okkar sérkennilega sögu frá því hvernig hann eignaðist pútterinn.
Frábær þáttur og auðvitað á léttum nótum.



