Seinni níu
Seinni níu
Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
#102 - Golfneistinn hvarf hjá Ólöfu Maríu á hátindi ferilsins
55 minutes Posted Mar 10, 2026 at 11:09 pm.
0:00
55:56
Download MP3
Show notes

Við fengum fjórfaldan Íslandsmeistara í heimsókn til okkar í Seinni níu. Ólöf María Jónsdóttir, fyrrverandi atvinnukona í golfi, kom í heimsókn til okkar og við fórum yfir ferilinn hennar.

Ólöf María var brautryðjandi í íslensku golfi en hún var fyrst til þess að vinna sér inn keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna árið 2005. Hún spilaði í nokkur ár meðal þeirra bestu í Evrópu áður en hún ákvað að leggja golfkylfurnar á hilluna og spilar sáralítið golf í dag þar sem hún býr í Texas í Bandaríkjunum.

Ólöf fer í þættinum yfir það hvernig hún missti hreinlega áhugann eða neistann fyrir golfíþróttinni þegar hún var á hátindi ferilsins. Mjög áhugaverð frásögn í meira lagi.

Við rekjum sögu Ólafar og fáum hana til að tala um afrek sín í íþróttinni, slæman golfþjálfara á háskólaárunum, að vera eina stelpan að æfa með strákum á unglingsárum og margt fleira.

Við fáum að heyra draumahollið hjá Ólöfu og einnig það helsta sem hún lærði á frábærum ferli.