
Tíu og hálfri klukkustund eftir að TF-ORM brotlenti í Ljósufjöll fjallar um flugslysið í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi í apríl 1986. Fimm manns fórust en tveimur var bjargað eftir tíu og hálfrar klukkustundar bið í flakinu.
Ljósufjöllum á Snæfellsnesi komust björgunarsveitir á slysstað og á meðan höfðu ástvinir farþeganna beðið fregna milli vonar og ótta. Fimm létust en tveir farþegar komust lífs af. Margt hefur breyst á þeim 34 árum sem eru liðin; umgjörð flugsins, björgunarbúnaður og viðbrögð við áföllum. Umsjón: Halla Ólafsdóttir. Tæknimaður: Einar Sigurðsson.
Apr 11, 2020
41 min

Ljósufjöll fjallar um flugslysið í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi í apríl 1986. Fimm manns fórust en tveimur var bjargað eftir tíu og hálfrar klukkustundar bið í flakinu.
Flugvélin TF-ORM á leið frá Ísafirði til Reykjavíkur hafði brotlent í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi. Við tók margra klukkustunda bið eftir björgun. Fljótlega tókst að staðsetja vélina en björgunarsveitarfólk átti mjög erfitt með að komast á slysstað vegna aftakaveðurs og erfiðra aðstæðna. Umsjón: Halla Ólafsdóttir. Tæknimaður: Einar Sigurðsson.
Apr 10, 2020
39 min

Ljósufjöll fjallar um flugslysið í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi í apríl 1986. Fimm manns fórust en tveimur var bjargað eftir tíu og hálfrar klukkustundar bið í flakinu.
Flugmaður og sex farþegar héldu í leiguflugi frá Ísafirði til Reykjavíkur eftir að áætlunarflugi var aflýst. Flugvélin barðist á móti sunnanáttinni sem þandi sig á leiðinni. Flugmaðurinn lækkaði flugið þegar hann nálgaðist Snæfellsnes, að því virtist, til að forðast ísingu sem settist á vélina. Þá var eins og tröllshrammur rifi í vélina. Umsjón: Halla Ólafsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Apr 8, 2020
40 min
