Ljósufjöll
Ljósufjöll
RÚV
Fyrsti þáttur
40 minutes Posted Apr 8, 2020 at 4:05 pm.
0:00
40:00
Download MP3
Show notes
Ljósufjöll fjallar um flugslysið í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi í apríl 1986. Fimm manns fórust en tveimur var bjargað eftir tíu og hálfrar klukkustundar bið í flakinu.
Flugmaður og sex farþegar héldu í leiguflugi frá Ísafirði til Reykjavíkur eftir að áætlunarflugi var aflýst. Flugvélin barðist á móti sunnanáttinni sem þandi sig á leiðinni. Flugmaðurinn lækkaði flugið þegar hann nálgaðist Snæfellsnes, að því virtist, til að forðast ísingu sem settist á vélina. Þá var eins og tröllshrammur rifi í vélina. Umsjón: Halla Ólafsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.