
Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Þeir ræða tölvuleikinn Crimson Desert og segja frá fyrstu hughrifum á leiknum, taka góða og nauðsynlega umræðu um DLSS 5, tæknina frá Nvidia, og síðast en ekki síst fjalla um Pokopia - nýja Pokémon leikinn sem hefur notið mikilla vinsælda á Switch 2 leikjatölvunni. Allt þetta og fleira til í nýjasta þætti Leikjavarpsins!
Mar 26
1 hr 10 min

Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel segir okkur frá God of War Sons of Sparta sem er heldur óhefðbundinn God of War leikur í platformer-stíl. Einnig er rætt um stórar fréttir úr heimi Microsoft Xbox og Sony PlayStation; Phil Spencer kveður Microsoft og Sony lokar Bluepoint Games leikjastúdíóinu. Ýmislegt fleira er til umræðu, þar á meðal byrjendaráð fyrir nýjan Switch 2 eiganda, Pokémon fréttir, leikir í spilun, nýr leikur væntanlegur frá nýju íslensku leikjafyrirtæki, upphitun fyrir gjafaleik og margt fleira.
Mar 2
1 hr 18 min

Daníel Rósinkrans, Steinar, Bjarki og Sveinn fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þætti 67 af Leikjavarpinu. Okkar helsti Nintendo sérfræðingur fer yfir það helsta frá Nintendo Direct: Partner Showcase þar sem væntalegir Switch og Switch 2 leikir voru kynntir. Steinar og Sveinn rýna í Nioh 3 og fjalla um nýjunga, helstu kosti og galla leiksins ásamt því að segja frá sínu áliti. Að lokum rennum við yfir leiki sem voru kynntir á State of Play kynningu Sony, þar sem við fengum meðal annars nýjar God of War fréttir! Einnig förum við yfir það helsta sem við erum að spila þessa dagana, ræðum Cairn stuttlega, minnumst á nýja Diablo II viðbót og margt fleira.
Feb 16
1 hr 38 min

Sveinn, Rósinkrans og Bjarki fara yfir það helsta og heitasta úr heimi tölvuleikjanna í 66. þætti Leikjavarpsins. Stóra viðfangsefni þáttarins er Xbox Developer Direct leikjakynningin sem fór í loftið 22. janúar síðasliðinn þar sem fjórir væntanlegir leikir fengu ítarlega kynningu, þar á meðal leikurinn sem strákarnir bíða spenntir eftir - FABLE! Rætt er um nýlega og væntanlega sjónvarpsþætti sem byggja á tölvuleikjum í kjölfar þess að tilkynnt var að Ólafur Darri mun fara með hlutverk Þórs í God of War sjónvarpsþáttum! Það gleymdist að nefna nokkra áhugaverða leikjatitla í seinasta þætti þegar farið var yfir væntanlega tölvuleiki á árinu 2026, þau mistök eru plástruð í lok þáttar <3
Ást, friður og tölvuleikir.
Feb 2
1 hr 16 min

Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fara yfir það sem er væntanlegt á árinu sem var að hefjast. Þar á meðal má nefna leiki á borð við GTA VI og nýjan James Bond leik. Strákarnir ræða einnig hvað stóð upp úr á árinu sem var að líða og hvaða leikir voru spilaðir yfir jólahátíðina. Þetta og margt fleira í þætti #65 af Leikjavarpinu!
Jan 19
1 hr 10 min

Við förum yfir allt það helsta frá einni stærstu tölvuleikjaverðlaunahátíð heims - The Game Awards! Rennum yfir hvaða leikir unnu í stærstu verðlaunaflokkunum en hlutverkaleikurinn Clair Obscur: Expedition 33 vann flest verðlaun þetta árið. Hvað stóð upp úr og hvað vantaði? Einnig segjum við frá helstu leikjakynningum kvöldsins þar sem nýir leikir voru kynntir til sögunnar, þar á meðal nýr væntanlegur leikur frá Larian Studios, leikjafyrirtækinu sem gerði Baldur's Gate 3. Þetta og margt margt fleira.
Dec 16, 2025
1 hr 17 min

Bjarki og Sveinn mættu á Icelandic Game Fest tölvuleikjaveisluna í Arena og segja frá því sem stóð upp úr en þar voru fjölmargir leikir frá íslenskum leikjastúdíóum til sýnis. Búið er að tilkynna hvaða leikir eru tilefndir til The Game Awards og er farið yfir valda verðlaunaflokka en Clair Obscur: Expedition 33 er tilnefndur til flestra verðlauna. Fleira er til umræðu eins og leikir í spilun, Golden Joystick Awards og margt fleira.
Dec 2, 2025
1 hr 17 min

Leikjavarpið vaknar aftur til lífsins eftir ljúfan (og aðeins of langan) sumardvala. Þeir Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja í 62. þætti Leikjavarpsins.
Helsta umræðuefni þáttarins er nýr vélbúnaður sem Valve kynnti til sögunnar fyrir skemmstu - Steam Machine, Steam Controller og Steam Frame. Mun Valve breyta leikjatölvumarkaðnum eins og við þekkjum hann? Hvaða áhrif mun nýja tölvan hafa á til dæmis Xbox leikjatölvuna frá Microsoft? Fleira efna er tekið fyrir í þættinum og má þar helst nefna seinkunina á Grand Theft Auto VI, Icelandic Game Fest sem fram fer á Arena og Steam og Master Lemon: The Quest for Iceland svo eitthvað sé nefnt.
Mynd: Steam Machine frá Valve https://store.steampowered.com/sale/steammachine
Nov 17, 2025
1 hr 5 min

Bjarki, Steinar og Sveinn þurrka rykið af hljóðnemunum og ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Meðal annars er rætt um útgáfu nýjustu leikjatölvu Nintendo, Switch 2, og ákveðinn fídus sem virðist ekki virka hér á Íslandi í þeirri tölvu.
Bjarki og Sveinn heimsóttu íslenska leikjafyrirtækið Myrkur Games á dögunum og segja frá leiknum Echoes of the End sem er nýr hasar- og ævintýraleikur sem er væntanlegur í sumar. Strákarnir rýna svo í leikina Elden Ring Nightreign, sem er frábrugðinn hinum hefðbundna Elden Ring, og Clair Obscur: Expedition 33 sem er „turn-based“ hlutverkaleikur frá franska leikjafyrirtækinu Sandfall Interactive.
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 Licensehttp://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
Jun 20, 2025
1 hr 28 min

Sextugi þáttur Leikjavarpsins er helgaður Nintendo Switch 2. Á dögunum hélt Nintendo nokkuð ítarlega kynningu á Switch 2 þar sem farið var yfir öll helstu atriði. Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta og ræða tæknileg atriði, leikjaúrval, nýja möguleika, verð, tollastríð og margt fleira.
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 Licensehttp://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
Apr 8, 2025
1 hr 41 min
Load more
