Show notes
Sveinn, Rósinkrans og Bjarki fara yfir það helsta og heitasta úr heimi tölvuleikjanna í 66. þætti Leikjavarpsins. Stóra viðfangsefni þáttarins er Xbox Developer Direct leikjakynningin sem fór í loftið 22. janúar síðasliðinn þar sem fjórir væntanlegir leikir fengu ítarlega kynningu, þar á meðal leikurinn sem strákarnir bíða spenntir eftir - FABLE! Rætt er um nýlega og væntanlega sjónvarpsþætti sem byggja á tölvuleikjum í kjölfar þess að tilkynnt var að Ólafur Darri mun fara með hlutverk Þórs í God of War sjónvarpsþáttum! Það gleymdist að nefna nokkra áhugaverða leikjatitla í seinasta þætti þegar farið var yfir væntanlega tölvuleiki á árinu 2026, þau mistök eru plástruð í lok þáttar <3Ást, friður og tölvuleikir.

