
Gísli Snær Erlingsson tók við stöðu forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar Íslands fyrir tveimur árum. Hann var áður skólastjóri London Film School og á undan stýrði hann The Puttnam School of Film hjá LaSalle College of the Arts í Singapore. Gísli lærði kvikmyndaleikstjórn í Frakklandi og hefur leikstýrt þremur bíómyndum, Stuttum frakka, Benjamín dúfu og Íkingút, auk fjölda annarra verkefna.
Ásgrímur Sverrisson ræðir við Gísla um reynslu hans af starfinu, hlutverk Kvikmyndamiðstöðvar, breytingarnar sem verið er að innleiða og loks stöðu og horfur í greininni.
Apr 17, 2025
39 min

Ásgrímur Sverrisson ræðir við Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóra RÚV og Margréti Jónasdóttur aðsstoðardagskrárstjóra RÚV um stefnuna varðandi leikið efni og heimildamyndir, fjármögnun, nýjan þjónustusamning, samstarfið við hinar norrænu almannastöðvarnar og sambandið við þjóðina.
Feb 13, 2024
42 min

Ásgrímur Sverrisson ræðir við þau Hlín Jóhannesdóttur og Anton Mána Svansson kvikmyndaframleiðendur um uppskeru ársins 2023, breytingarnar á Edduverðlaununum, þrönga stöðu Kvikmyndasjóðs og þau álitamál sem kvikmyndaheimurinn stendur frammi fyrir á næstu misserum.
Dec 29, 2023
45 min

Kvikmyndaskóli Íslands hefur menntað hundruði kvikmyndagerðarfólks og eru meirihlutinn að störfum í íslenskum kvikmynda- og sjónvarpsiðnaði. Skólinn átti þrjátíu ára afmæli í fyrrahaust og af því tilefni ræddi ég við Börk Gunnarsson leikstjóra og handritshöfund sem verið hefur rektor skólans þennan veturinn. Við spjölluðum um framlag skólans til íslenskrar kvikmyndagerðar, hvaðan nemendurnir koma og væntingar þeirra, áskoranirnar í rekstri skólans og reynslu Barkar af rektorsstarfinu.
Apr 25, 2023
18 min

Jörundur Rafn Arnarson er myndbrellumeistari eða visual effects supervisor og hefur sem slíkur komið að tugum innlendra og erlendra verkefna síðustu tuttugu árin. Ásgrímur Sverrisson ræddi við hann um myndbrellufagið og það sem er efst á baugi í þeim heimi, sem að sjálfsögðu er óaðskiljanlegur hluti kvikmyndagerðar.
Jan 11, 2023
1 hr 2 min

Umræða um það helsta sem íslenski kvikmyndabransinn gekk í gegnum á árinu 2022 með Kristínu Andreu Þórðardóttur framleiðanda, leikstjóra og stjórnanda Skjaldborgarhátíðarinnar og Ragnari Bragasyni leikstjóra, handritshöfundi og formanni Samtaka kvikmyndaleikstjóra. Umræðuefni: Aðsókn og áhorf, bíó og sjónvarp, Bíó Paradís, hækkun endurgreiðslunnar i 35%, Kvikmyndastefnan og niðurskurðurinn til Kvikmyndasjóðs, Kvikmyndalistadeild Listaháskólans, Evrópsku kvikmyndaverðlaunin og loks horfurnar framundan.
Dec 28, 2022
57 min

Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson hafa á síðustu tveimur árum (2020-2022) sent frá sér fjórar bíómyndir sem allar hafa notið velgengni í kvikmyndahúsum þrátt fyrir heimsfaraldur. Þetta eru Síðasta veiðiferðin, Amma Hófí, Saumaklúbburinn og nú Allra síðasta veiðiferðin. Ég ræddi við þá um reynsluna af þessari þeysireið og hvert skal haldið héðan.
Mar 24, 2022
42 min

Kvikmyndadeild Listaháskólans tekur til starfa í haust. Ásgrímur Sverrisson ræðir við Steven Meyers deildarstjóra um uppbyggingu námsins og hvernig hann sér þetta allt fyrir sér.
Feb 25, 2022
29 min

Friðrik Erlingsson og Ásgrímur Sverrisson ræða um sjöunda og áttunda þátt Verbúðarinnar út frá sjónarhóli handritshöfundarins. Þetta er lokaþáttur yfirferðar um þessa þáttaröð (alls 4 þættir).
Feb 16, 2022
1 hr 16 min

Friðrik Erlingsson og Ásgrímur Sverrisson ræða um fimmta og sjötta þátt Verbúðarinnar út frá sjónarhóli handritshöfundarins.
Feb 2, 2022
58 min
Load more
