Klapptréð
Klapptréð
Klapptré (klapptre.is)
Apr 17, 2025 · 39 min

#13: Gísli Snær Erlingsson forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands - reynslan af starfinu, breytingar, staða og horfur

MP3
Gísli Snær Erlingsson tók við stöðu forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar Íslands fyrir tveimur árum. Hann var áður skólastjóri London Film School og á undan stýrði hann The Puttnam School of Film hjá LaSalle College of the Arts í Singapore. Gísli lærði kvikmyndaleikstjórn í Frakklandi og hefur leikstýrt þremur bíómyndum, Stuttum frakka, Benjamín dúfu og Íkingút, auk fjölda annarra verkefna.
Ásgrímur Sverrisson ræðir við Gísla um reynslu hans af starfinu, hlutverk Kvikmyndamiðstöðvar, breytingarnar sem verið er að innleiða og loks stöðu og horfur í greininni.

This podcast uses Podbean for stats and dynamic audio. What this means Episodes play from the podcast's own servers, unmodified. Not affiliated with Podbay.