X26 Sveitarstjórnarkosningar
X26 Sveitarstjórnarkosningar
Ritstjórn Morgunblaðsins
X26 - Akureyri: heitt í kolunum á borgarafundi
1 hour 20 minutes Posted May 7, 2026 at 4:00 pm.
0:00
1:20:19
Download MP3
Show notes

Atvinnumál, Norðurorka, sjókvíaeldi í Eyjafirði, málefni eldri borgara og möguleg sameining sveitarfélaga voru meðal helstu umræðuefna á fjölmennum borgarafundi Morgunblaðsins á Akureyri í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí.

Meðal annars var hart tekist á um Norðurorku, sjókvíaeldi og framtíð Akureyrar. Fundurinn fór fram á Græna hattinum þar sem þétt var setið.

Sex oddvitaframbjóðendur tóku þátt í umræðunum: Sunna Hlín Jóhannesdóttir fyrir Framsóknarflokkinn, Sindri S. Kristjánsson fyrir Samfylkinguna, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir fyrir Vinstri græn, Berglind Ósk Guðmundsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Óðinn Svan Óðinsson fyrir L-lista Bæjarlista Akureyrar og Hlynur Jóhannsson fyrir Miðflokkinn.