X26 Sveitarstjórnarkosningar
X26 Sveitarstjórnarkosningar
Ritstjórn Morgunblaðsins
X26 - Húnabyggð: Vilja virkja tækifærin
52 minutes Posted May 7, 2026 at 6:00 am.
0:00
52:59
Download MP3
Show notes

Sameining sveitarfélaga, fjármál, atvinnumál, orkumál og framtíð innviða voru meðal helstu umræðuefna þegar rætt var við oddvita framboðanna þriggja í Húnabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Í framboði eru A-listi, Öll saman, undir forystu Jóns Gíslasonar, B-listi Framsóknar og annarra framfarasinna, undir forystu Gríms Rúnars Lárussonar, og D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra í Húnabyggð, undir forystu Guðmundar Hauks Jakobssonar.

Húnabyggð varð til við sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps árið 2022. Síðar sameinaðist Skagabyggð sveitarfélaginu, 1. ágúst 2024. Húnabyggð er nú sjöunda stærsta sveitarfélag landsins að flatarmáli og nær yfir alla Austur-Húnavatnssýslu að Skagaströnd undanskilinni. Íbúar eru um 1.370.