X26 Sveitarstjórnarkosningar
X26 Sveitarstjórnarkosningar
Ritstjórn Morgunblaðsins
X26 - Borgarbyggð: kappræður oddvita
55 minutes Posted May 2, 2026 at 9:33 am.
0:00
55:35
Download MP3
Show notes

Uppbygging, fjármál sveitarfélagsins og grunnþjónusta voru í forgrunni í oddvitakappræðum Borgarbyggðar í Hádegismóum.

Þar leiddu saman hesta sína Hermann Valsson fyrir Borgarbyggðarlistann, Davíð Sigurðsson fyrir Framsóknarflokkinn, Þórður Brynjarsson fyrir Miðflokkinn og Sigurður Guðmundsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Borgarbyggð gengur nú til kosninga sem sameinað sveitarfélag með Skorradalshreppi. Um 4.200 íbúar búa í sveitarfélaginu sem er víðfeðmt og fjölbreytt.

Í kappræðunum kom fram almenn samstaða um að halda þurfi áfram uppbyggingu, fjölga íbúum, styrkja atvinnulíf og tryggja góða grunnþjónustu. Ágreiningur snerist fremur um forgangsröðun og einstök mál, meðal annars Brákarey og vindorku.