Show notes
Samgöngur, atvinnuuppbygging, rekstur sveitarfélagsins og náttúruvernd voru meðal helstu mála þegar rætt var við oddvita framboðanna í Múlaþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Múlaþing varð til árið 2020 við sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar og er eitt víðfeðmasta sveitarfélag landsins.
Fimm listar eru í framboði: Framsóknarflokkur undir forystu Jónínu Brynjólfsdóttur, Sjálfstæðisflokkur með Berglindi Hörpu Svavarsdóttur, Austurlistinn og Viðreisn með Hólmfríði Rut Einarsdóttur, Miðflokkurinn með Jóhann Harðarson sem fulltrúa oddvita og Vinstri græn með Ásrúnu Björg Stefánsdóttur.

