X26 Sveitarstjórnarkosningar
X26 Sveitarstjórnarkosningar
Ritstjórn Morgunblaðsins
X26 - Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar á fjölmennum borgarafundi
1 hour 21 minutes Posted Apr 30, 2026 at 6:17 pm.
0:00
1:21:33
Download MP3
Show notes

Mikill áhugi virðist vera á sveitarstjórnarkosningunum í Fjarðabyggð ef marka má mætinguna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is þar sem oddvitar fjögurra framboða tókust á um rekstur sveitarfélagsins, atvinnuuppbyggingu, samgöngur og þjónustu við íbúa. Fundurinn einkenndist af tiltölulega góðum tóni þrátt fyrir skýran ágreining um áherslur og framtíðarsýn.

Á sviðinu voru Ragnar Sigurðsson fyrir Sjálfstæðisflokk, Stefán Þór Eysteinsson fyrir Samfylkingu og annað félagshyggjufólk, Þuríður Lilly Sigurðardóttir fyrir Framsóknarflokk og Hrafn Bjarnason fyrir Miðflokk.

Viðsnúningur í rekstri