X26 Sveitarstjórnarkosningar
X26 Sveitarstjórnarkosningar
Ritstjórn Morgunblaðsins
X26 - Tjörneshreppur: Ráðdeild og sjálfstæði í fámennasta hreppi landsins
52 minutes Posted Apr 30, 2026 at 6:05 am.
0:00
52:49
Download MP3
Show notes

Tjörneshreppur er fámennasti hreppur landsins en lætur ekki smæðina stöðva sig. Í samtali við Morgunblaðið í félagsheimilinu Sólvangi fer Aðalsteinn J. Halldórsson oddviti yfir stöðu hreppsins, sjálfkjörið, íbúaþróun, fjármál og framtíð sveitarfélagsins.

Hreppurinn nær yfir norður- og vesturströnd Tjörness að Héðinsvík norðan Húsavíkur og er um 199 ferkílómetrar að stærð. Þar búa nú 56 manns og sjö börn eru á grunn- og leikskólaaldri. Það er mesti fjöldi barna í hreppnum í um 30 ár.

„Það hljómar nú kannski ekki eins mikið en það er samt það mesta í um 30 ár,“ segir Aðalsteinn.