Sveitarstjórnarmál í Bláskógabyggð einkennast um þessar mundir af örum vexti, auknum kröfum til innviða og umræðu um hvernig sveitarfélagið geti haldið í sérstöðu sína á sama tíma og því vex fiskur um hrygg.
Þetta kom skýrt fram í samtali við oddvita T-lista og Þ-lista, þau Helga Kjartansson og Önnu Grétu Ólafsdóttur, þar sem farið var yfir stöðu sveitarfélagsins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Bláskógabyggð varð til árið 2002 við sameiningu Þingvallahrepps, Laugardalshrepps og Biskupstungnahrepps. Um árabil hafa tvö framboð, T-listi og Þ-listi, tekist þar á um völdin. Í kosningunum 2022 hlaut T-listinn 391 atkvæði og fimm fulltrúa, en Þ-listinn 166 atkvæði.
T-listinn hefur farið með meirihluta síðustu þrjú kjörtímabil, en Þ-listinn var við stjórnvölinn frá stofnun sveitarfélagsins og fram til ársins 2010.



