X26 Sveitarstjórnarkosningar
X26 Sveitarstjórnarkosningar
Ritstjórn Morgunblaðsins
X26 - Uppbygging í brennidepli á Höfn
55 minutes Posted Apr 14, 2026 at 2:52 pm.
0:00
55:06
Download MP3
Show notes

Yfirvofandi kosningar á Hornafirði bera þess skýr merki að sveitarfélagið stendur á krossgötum. Á fundi með Morgunblaðinu á Höfn tókust oddvitar fjögurra framboða á um rekstur sveitarfélagsins, álögur á íbúa, innviðauppbyggingu og framtíð stórra þróunarverkefna í ferðaþjónustu og miðbæjarins á Höfn.

Framboðin sem um ræðir eru KEX-framboð með Eyrúnu Fríðu Árnadóttur í broddi fylkingar, Sjálfstæðisflokkur, sem Gauti Árnason leiðir, Framsókn undir forystu Hjaltu Þórs Vignissonar og Miðflokkurinn, en oddviti hans er Reynir Ásgeirsson. Núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks og K-framboðs hefur stýrt sveitarfélaginu á kjörtímabilinu, Framsókn hefur skipað minnihlutann en Miðflokkurinn bætist nú við sem fjórða framboðið.