Show notes
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Mugison semur lag ársins með vini sínum Pétri Ben, Trabant treður upp á Bessastöðum, Ske er í góðum fíling og Eivör vinnur með Vestur-íslenska tónlistarmanninum Bill Bourne. Björk syngur á setningarathöfn Ólympíuleikanna, Jónsi fer í Eurovision, Nýdönsk og Sinfóníuhljómsveitin rugla saman reytum og Jón Ólafs syngur um sunnudagsmorgun. Brimkló segir smásögur, Hljómar rífa húmorinn upp og hljómsveitin Tenderfoot vekur bjartar vonir. Þórunn Antonía fer í brúðkaupsferð til Bretlands en Quarashi kastar hvíta handklæðinu í hringinn og Jan Mayen dásamar Nick Cave. Á móti sól breiðir yfir 12 íslensk topplög og Jagúar heldur áfram að fönka landann upp, Sigurmolarnir syngja sigurlagið og Mannakorn syngur um Satan.Meðal viðmælenda í 27. þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 2004 er til umfjöllunar, eru Örn Elías Guðmundsson, Samúel Jón Samúelsson, Börkur Birgisson, Daði Birgisson, Gunnar Þórðarson, Björn Stefánsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Ragnar Kjartansson, Þorvaldur Gröndal, Magni Ásgeirsson, Samúel Örn Erlingsson, Jón Ólafsson, Guðmundur Steingrímsson, Frank Hall, Sölvi Blöndal, Vilhelm Anton Jónsson, Þórunn Antonía Magnúsdóttir, Jón Björn Ríkharðsson og Ágúst Bogason.Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.Lagalisti:Mugison - I Want You/What I Would Say In Your Funeral/2 Birds/Murr Murr/I?d AskJagúar - Bodyparty/Hello Somebody/Þú ertHljómar - Upp með húmorinn/Eitt lítið stefBrimkló - Nú held ég heim/Bolur inn við beinTenderfoot - Waterfall/Beautiful SonTrabant - Lady Elephant/Enter SpacebarEivör Pálsdóttir - Only A Friend Of Mine/Tröllabundin/Ég veit að þú kemurÞórir - Hey Ya, Canada Oh Canada Á móti sól - Traustur vinurBjörk - Who Is It/Oceana/Triumph Of A HeartJón Ólafs - Afstæðiskenning ástarinnar/Láttu þig dreyma/SunnudagsmorgunnNýdönsk & Sinfó - Hvað kostar hamingjan Ske - On The Way To Lose It Somehow/Beautiful FlowersJónsi - HeavenMannakorn - María/Satan er til Quarashi - Stun Gun/This song/StarsStart - Lífið og tilveran/Paradís/Gamlar myndirHoneymoon - Passive Aggressive/Truth Hurts/Come UndueStranger - You know Jan Mayen - On A Mission/Nick CaveSverrir Stormsker & Landsliðið - Sigurlagið

