Show notes
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Hjálmar heilla með seiðandi reggítónum, partýhetjan Love Guru slær í gegn, það eru gleðitímar hjá Kalla Bjarna og Stuðmenn eru í takt við tímann. Nylon er alls staðar, Raggi Bjarna er í flottum jakka, Ragnheiður Gröndal syngur vetrarljóð og Rafn Jónsson kveður sáttur. Mammút sigrar í Músíktilraunum, Múm leggur land undir fót en Geir Harðarson nemur land. Í svörtum fötum tryllir landann, Mínus túrar beggja vegna Atlantshafsins, Brain Police æfir stíft og Aldrei fór ég suður fer af stað. Ellen syngur sálma, Bubbi syngur um íslenska sjómenn en Hvanndalsbræður eru hrútleiðinlegir.Meðal viðmælenda í 28. þættinum, þar sem haldið verður áfram að fjalla um íslenska tónlistarárið 2004 eru Guðmundur Kristinn Jónsson, Ragnheiður Gröndal, Örn Elías Guðmundsson, Einar Jónsson, Þórður Helgi Þórðarson, Margrét Eir Hjartardóttir, Einar Bárðarson, Ragnar Bjarnason, Rafn Ragnar Jónsson, Egill Örn Rafnsson, Ragnar Sólberg Rafnsson, Bubbi Morthens, Birgitta Haukdal, Erpur Eyvindarson, Jón Björn Ríkharðsson, Björn Stefánsson og Þorkell Máni Pétursson.Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.Lagalisti:Hjálmar - Jamm og Jú/Kindin Einar/Bréfið/BorginStuðmenn - Í takt við tímann/Fönn fönn fönnRagnheiður Gröndal - Húmar að/Landgangur/Ítem/DísGeir Harðarson - AhaMugison - I?d AskGus Gus - Call Of The Wild Kalli Bjarni - Gleðitímar+Jón Sig - I Don?t Wan?t To Talk About ItMaus - Over Me Under Me Í Svörtum Fötum - Meðan ég sef/EittLove Guru - Ástarblossi/1,2 Selfoss Singapore Sling - Life Is Killing My Rock 'n' roll Mammút - Mosavaxin börnHvanndalsbræður - KisuklessaMÚM - Weeping Rock Rock Margrét Eir - Í næturhúmi/Einn góðan dagNylon - Allstaðar/Lög Unga fólsins/Bara í nóttRagnar Bjarnason - Flottur jakki/BarnRabbi - Fuglar geta ekki flotið á tungliu/Veðrið er gott fyrir vestanPáll Rósinkrans - Nátturubarn/Lífið sjálftBubbi Morthens - Íslenskir sjómenn/Þetta mælti hann Ellen Kristjánsdóttir - Nú legg ég augun afturÍrafár - lífiðBirgitta Haukdal - Vögguvísa án söngs/Söngur súkkulaðiprinsessunnarHæsta hendin - Norður/Botninn uppBrain Police - Coed Fever/Mr. DollyMínus - Angel In DisguiseSlowblow - Cardboard BoxDraupner - Draumkvæði Ellen Kristjánsdóttir - Guð gaf mér eyra Daysleeper - Looking To Climb

