Show notes
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Hljómar snúa aftur, Maus og Botnleðja tala tungum og Eberg kveður sér hljóðs. Mínus umpólast, Barði í Bang Gang er sinnar eigin gæfu smiður, Eivör slær í gegn hjá frændum sínum og Sálin frumsýnir söngleik. Idol æði skolar á land frá Ameríku, KK & Maggi fara í ferðalag, Ríó tríó kemur úr felum en Jónsi Í svörtum fötum hefur ekkert að fela. Trabant slær í gegn á Airwaves og Funerals gerir kántrýplötu uppí sveiten Margrét Eir bíður í andartak. Skytturnar rappa um lognið á undan storminum, Dys gefur út veiðileyfi á ríkisstjórnir en Land og synir eru á fjórum fótum í óðali feðranna.Meðal viðmælenda í 26. þættinum, þar sem haldið verður áfram að fjalla um íslenska tónlistarárið 2003, eru Gunni Þórðar, Rúni Júl, Eggert og Biggi Maus, Eivör, Margrét Eir, Hrafnkell Pálmarsson, Jónsi, Sölvi Blöndal, Barði Jóhannsson, Lárus Jóhannesson, Anna Hildur, Einar Kristjáns, Ragnar Kjartans, Þorvaldur Gröndal, Björn Stefánsson, Máni Pétursson, Björgvin Halldórs, Gummi Jóns, Þór Freysson, Heiðar Örn Kristjáns, Einar Tönsberg og Hreimur.Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.Lagalisti:Hljómar - Mývatnssveitin er æði/Við samanMaus - How Far Is Too Far/Musick/My Favourite Excuse/ Life In A FishbowlEivör Pálsdóttir - Hjarta mitt/Nú brennur tú í mærKK & Maggi Eiríks - Flöku Jói Í svörtum fötum - Þrá/ Ekkert að fela Jónsi & Birgitta - Sumarnótt Quarashi - Mess it up/Race city/Orð morðBang Gang - Something Wrong/Follow/Stop In The Name Of LoveLady And Bird - Do What I DoGusGus & Einar Örn - Í augum útiTrabant - Nasty Boy Funerals - To Hell/Stockholm CityStuðmenn - Halló halló hallóMínus - Romantic Exorcism/The Long Face/Here Comes The NightBjörgvin & Krummi - You Belong To Me/Hvað vita þeirSálin - Á einu augabragðiMiðnes - Ég sprengi klukkan þrjúAnna Katrín - Ekkert breytir þviJón Sigurðsson - FlugvélarKalli Bjarni - Aðeins einu sinni Ríó - Alltaf einnBotnleðja - Brain Balls & Dolls/Human ClickbateEberg - Smoker In A Film/Plastic LionsSlowblow - Why Hawaii?Kimono - Japanese Policeman Land og Synir - Á fjórum fótum/Von mín er súMargreit Eir - Augnablik/Heiðin háSkytturnar - Lognið á undan storminumDys - Veiðileyfi á ríkisstjórnir/Ísland brennurSigga Beinteins & Björgvin Halldórs - Ef til vill andartak

