Show notes
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Birgitta Haukdal opnar hjarta í Eurovision, Botnleðja syngur Júróvísu og Dr. Gunni býður upp á snakk fyrir pakk. Emilíana Torrini semur topplag fyrir Kylie en Ragnheiður Gröndal trónir á toppnum á tónlist.is. 200.000 Naglbítar skipta um trommara, Á móti sól sendir frá sér Fiðrildi og Skífan vinnur baráttuna um Brain Police. Bubbi syngur um þúsund kossa nótt, Guðjón Rúdólf leitar að húfunni sinni, Papar halda til hafs á ný og hinir ástsælu Spaðar syngja Obb bobb bobb. Dáðadrengir sigra í Músíktilraunum, Nilfisk spilar í Höllinni í boði Foo Fighters, Dr. Spock syngur klám en Leoncie um ást á pöbbnum. Hera tekur upp plötu á íslensku, Lára Rúnars vekur athygli á uppskeruhátíð en Hvannadalsbræður eru gjörsamlega út úr kú.Meðal viðmælenda í 25. þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 2003 er til umfjöllunar, eru Vilhelm Anton Jónsson, Bubbi Morthens, Hera Hjartardóttir, Lára Rúnarsdóttir, Emilíana Torrini, Magni Ásgeirsson, Guðmundur Andri Thorsson, Magnús Haraldsson, Ragnheiður Gröndal, Haraldur Gíslason, Birgitta Haukdal, Gunnar Lárus Hjálmarsson, Jón Björn Ríkharðsson, Dave Grohl, Víðir Björnsson og Ólafur Ragnar Grímsson.Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.Lagalisti:Hljómar - Mývatnssveitin er æði/Við samanMaus - How Far Is Too Far/Musick/My Favourite Excuse/ Life In A FishbowlEivör Pálsdóttir - Hjarta mitt/Nú brennur tú í mærKK & Maggi Eiríks - Flöku Jói Í svörtum fötum - Þrá/ Ekkert að fela Jónsi & Birgitta - Sumarnótt Quarashi - Mess it up/Race city/Orð morðBang Gang - Something Wrong/Follow/Stop In The Name Of LoveLady And Bird - Do What I DoGusGus & Einar Örn - Í augum útiTrabant - Nasty Boy Funerals - To Hell/Stockholm CityStuðmenn - Halló halló hallóMínus - Romantic Exorcism/The Long Face/Here Comes The NightBjörgvin & Krummi - You Belong To Me/Hvað vita þeirSálin - Á einu augabragðiMiðnes - Ég sprengi klukkan þrjúAnna Katrín - Ekkert breytir þviJón Sigurðsson - FlugvélarKalli Bjarni - Aðeins einu sinni Ríó - Alltaf einnBotnleðja - Brain Balls & Dolls/Human ClickbateEberg - Smoker In A Film/Plastic LionsSlowblow - Why Hawaii?Kimono - Japanese Policeman Land og Synir - Á fjórum fótum/Von mín er súMargreit Eir - Augnablik/Heiðin háSkytturnar - Lognið á undan storminumDys - Veiðileyfi á ríkisstjórnir/Ísland brennurSigga Beinteins & Björgvin Halldórs - Ef til vill andartak

