
Í þessum þætti fjallar Kjartan um The Complete Guide to Mergers and Acquisitions og um leið hvernig hann nýtti sér hana þegar hann keypti fyrirtækið Ormsson.
Oct 16, 2023
1 hr 19 min

GestastjórnunÍ þessum þætti kemur Andrés Jónsson stjórnendaráðgjafi í heimsókn og ræðir bókin Executive Presence eftir Sylwia Hewlett. Í bókinni er farið yfir umfangsmikla rannsókn þar sem skoðaðir voru þær þættir í framkomu sem mestu máli skipta. Við ræðum þessa þætti, segjum sögur og pælum í því hvernig við getum tileinkað okkur þá í þessu fróðlega spjalli.
Mar 30, 2022
2 hr 2 min

So You’ve Been Publicly Shamed kom árið 2015 eftir Jon Ronson og tekur á útilokunarmenningu. Við ræðum í þessum þætti bókina efni hennar auk fleiri anga eins og samfélagsmiðla og hvernig smávægileg komment geta orðið að snjóflóði.
Jan 31, 2022
1 hr 39 min

Einn mesti frumkvöðull Íslandssögunar og annar stofnandi Bónusveldisins fer hér yfir feril sinn frá Bónus og alla leið til FL-Group, Glitnis og dómsstóla. Svo er ferðast um útrásina til Bandaríkjanna,Stóra Bretlands, Sullenberger, Jónína Ben, Magasin Du Nord, Iceland, Arcadia og auðvitað Gunnar Smári koma líka við sögu. . Við ræðum bókina og þennan merkilega mann Jón Ásgeir og arfleið hans. Málsvörn er fyrsta íslenska bókin sem við tökum til skoðunar. Vonandi samt ekki sú síðasta.
Sep 30, 2021
1 hr 39 min

Ten Deadly Marketing Sins eftir Philip Kotler kom út árið 2004. Í þessum þætti ræðir Kjartan um hvernig hann nýtti sér þessa bók þegar hann keypti ásamt félögum sínum hið gamalgróna fyrirtæki Ormsson .
Sep 14, 2021
1 hr 38 min

Influence - the Psychology of Persuasion kom fyrst út árið 1984 var svo endurútgefin árin 1994 og 2006. Í ár 2021 verður bókin svo endurútgefin í enn stærri útgáfu þar sem höfundur bætir við einu lögmáli til viðbótar sem hann nefnir Unity. Höfundurinn Robert Caldini er doktor í sálfræði. Í þessari bók er farið í gegnum sex lögmál sálfræði og mannlegrar hegðunar og hvernig þau hafa áhrif á okkur. Þetta er ein af þessum bókum sem allir ættu að lesa helst sem börn svo við getum sjálf nýtt okkur þessi lögmál en ekki síður áttað okkur á þeim þegar þeim er beint að okkur.Bókin hefur selst í yfir 5 milljónum eintaka og er aðgengileg á Amazon og Audible
May 30, 2021
1 hr 39 min

Made in America er sjálfsævisaga Sam Walton stofnanda Walmart. Hann skrifaði bókina á dánarbeðinu 1992 en í þessari einlægu frásögn fer hann yfir það hvernig hann fór frá því að eiga ekki neitt í að byggja upp það sem er í dags stærsta fyrirtæki í heimi með $540 milljarða veltu. Ef þú hefur áhuga á sögu verslunar í heiminum, ert að leita að innblæstri, vilt læra af mistökum annarra og fræðast um einn merkasta frumkvöðul síðari tíma þá er þetta bók fyrir þig.Bókina er hægt að nálgast á Amazon. Hana er hægt að fá sem hljóðbók á Audible
May 15, 2021
1 hr 38 min

The Start up of You kom út árið 2012. Höfundar eru Reed Hoffman, einn stofnenda Paypal og Linkedin og Ben Casnocha. Í bókinni er farið yfir hvernig við verðum að hugsa starfsferil okkar á annan hátt. Áður dugði að fá góða vinnu hjá stöndugu fyrirtæki og ef maður stóð sig vel þá óx maður og fékk framgang. Slík línuleg þróun á ekki við í dag og mæla höfundar með að við nálgumst starfsferill okkar eins og um væri að ræða rekstur á sprotafyrirtæki (Startup). Ferill okkar flestra sé sjaldnast línulegur heldur sé einkennist hann af því að fara upp og niður eftir tímakvarðanum. Í bókinni er farið yfir og við ræðum í þessum þætti. Við verðum að skilgreina okkur - sérstöðu, gildismat og framboð og eftirspurn eftir færni og hæfileikum okkar. Við eigum að vera tilbúin að breyta um kúrs. Tengslanetið sé eitt það mikilvægasta sem við eigum. Farið er yfir hvernig maður byggir upp og viðheldur tengslaneti. Mikilvægi þess að við grípum stóru tækifærin þegar þau gefast.Áhættu hvernig mannkyn ofmetur áhættu og mikilvægi þess að við tökum áhættu á skipulagðan hátt.Bókina má nálgast á AmazonOg hún er aðgengileg á Audible
Apr 30, 2021
1 hr 11 min

Bókin The Goal eftir Elyahu Goldratt kom út árið 1984. Í þessari bók kynnir höfundur heiminn fyrir kenningu sinni um flöskuhálsa (e. theory of constraints, TOC). Kenningin er notuð sem aðferð til að koma auga á flöskuhálsa í rekstri sem koma í veg fyrir að markmiðum sé náð. Aðferðirnar sem hann leggur svo til bæta kerfisbundið flöskuhálsinn þar til hann er ekki lengur takmarkandi þáttur. Þetta er ein af þeim bókum sem Jeff Bezos, stofnandi og aðaleigandi Amazon og einn ríkasti maður í heimi, gerir kröfu um að stjórnendur sýnir lesi. Hann notar reyndar líka umgjörðina sem bókin lýsir til að skipuleggja framtíð Amazon.Í þættinum er vísað í viðtal Kjartans þar sem hann ræðir um bókina RIch Dad Poor Dad. Það viðtal má finna hér á Spotify.Hægt er að kaupa bókina af AmazonHún fæst einnig sem hljóðbók á Audible
Apr 15, 2021
1 hr 16 min

Bókin Delivering Happiness: A Path to Profits, Passion, and Purpose kom út árið 2010. Þar er ævintýralegri ævi Tony Hsieh rakin en hann stofnaði tvö fyrirtæki Linkexchange sem selt var til Microsoft og netverslunina Zappos sem seld var til Amazon. Í bókinni kynnumst við frumkvöðli sem áttar sig fljótlega að leikurinn snýst um annað og meira en að græða peninga. Tony lést af slysförum í nóvember 2020 aðeins 47 ára gamall. Bókina má kaupa á Amazon Og hana má einnig fá á Audible
Mar 30, 2021
1 hr 27 min
Load more
