Show notes
The Start up of You kom út árið 2012.
Höfundar eru Reed Hoffman, einn stofnenda Paypal og Linkedin og Ben Casnocha.
Í bókinni er farið yfir hvernig við verðum að hugsa starfsferil okkar á annan hátt. Áður dugði að fá góða vinnu hjá stöndugu fyrirtæki og ef maður stóð sig vel þá óx maður og fékk framgang. Slík línuleg þróun á ekki við í dag og mæla höfundar með að við nálgumst starfsferill okkar eins og um væri að ræða rekstur á sprotafyrirtæki (Startup). Ferill okkar flestra sé sjaldnast línulegur heldur sé einkennist hann af því að fara upp og niður eftir tímakvarðanum.
Í bókinni er farið yfir og við ræðum í þessum þætti.
- Við verðum að skilgreina okkur - sérstöðu, gildismat og framboð og eftirspurn eftir færni og hæfileikum okkar.
- Við eigum að vera tilbúin að breyta um kúrs.
- Tengslanetið sé eitt það mikilvægasta sem við eigum. Farið er yfir hvernig maður byggir upp og viðheldur tengslaneti.
- Mikilvægi þess að við grípum stóru tækifærin þegar þau gefast.
- Áhættu hvernig mannkyn ofmetur áhættu og mikilvægi þess að við tökum áhættu á skipulagðan hátt.

