Virðing í uppeldi
Virðing í uppeldi
medvitadirforeldrar
104. Skjáuppeldi - nú með Skúla Braga
1 hour 23 minutes Posted Jan 15, 2026 at 6:45 am.
0:00
1:23:05
Download MP3
Show notes
Við höldum áfram umfjöllun okkar um skjáuppeldi. 
Skúli Bragi Geirdal er sviðsstjóri hjá Netöryggismiðstöð Íslands (SAFT - Icelandic Safer Internet Center) sem er vakningarátak um örugga tækni- og miðlanotkun á Íslandi ásamt því að vera varaþingmaður á Alþingi og flutningsmaður þingsályktunartillögu um lágmarksaldur á samfélagsmiðlum á síðasta haustþingi. 
Skúli hefur að auki þrætt skólana bak og fyrir og talað við þúsundir barna og ungmenna um land allt og er auk þess faðir sjálfur. Í samtali Skúla við þær Birnu Almarsdóttur og Dagnýju Hróbjartsdóttur var farið ítarlega yfir sviðið svo að nú – eftir líka samtalið við Önnu Laufeyju í síðasta þætti – ættu allir foreldrar að geta verið vel með á nýjustu nótunum í þessum efnum.