Show notes
Í þessum þætti hlaðvarpsins var rætt um mataruppeldi. Guðrún Inga Torfadóttir stjórnaði upptökum og spurði misgáfulegra spurninga, með spekingum úr hópi Meðvitaðra foreldra, þeim Guðrúnu Björnsdóttur og Svövu Margréti Sigurðardóttur. En í hópi sérfræðinga voru það Ása María Reginsdóttir og Ebba Guðný Guðmundsdóttir sem heiðruðu okkur með nærveru sinni. Sigrún Þorsteinsdóttir barna- og heilsusálfræðingur sendi okkur jafnframt vandað innslag um rannsóknarverkefnið Bragðlaukaþjálfun sem fer fram um þessar mundir við Háskóla Íslands og deildi með okkur frábærum ráðum.
Við ætluðum okkur ólík hlutverk í þessum þætti. Við fórum yfir hvernig RIE-fræðin og kenning Ellyn Satter hafa gefið okkur frelsi og frið í matmálstímunum á okkar heimilum. Ebba og Ása gáfu góð ráð við val á matvælum og fóru yfir kosti ólívuolíunnar og Omega 3 olía. Við fórum yfir mataruppeldið sem við ólumst upp við sjálfar. Við ræddum sérkenni íslensku matarmenningarinnar, þar sem sykur er allsráðandi á laugardögum og í afmælum, og hvort hægt sé að mæla með því að gefa börnum svonefndar skvísur. Við fórum yfir gerð boosta. Þá var farið yfir „barnið borðar sjálft“ aðferðina við að gefa ungabörnum mat. Við ræddum um hvernig erfitt getur reynst að rjúfa samhengið sem við búum til á milli sætinda og þess að hafa gaman og sýna væntumþykju og hvernig við setjum sæt matvæli upp á stall gagnvart leiðinlegum hollum kostum. Þá ræddum við hvernig við tæklum aðra fjölskyldumeðlimi og vini sem vilja gefa börnum okkar sæta og gómsæta kosti sem við sem foreldrar myndum ekki velja alla jafna.