Show notes
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Salka Valka sem kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932, og segir verkið sögu Salvarar Valgerðar Jónsdóttur, sem er kölluð Salka Valka, en hún elst upp á Óseyri við Axlarfjörð, á miklum umbrotartímum í lífi íslensku þjóðarinnar.Samlesari Sölku Völku og sérstakur gestur þáttar er Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari. Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta verk sem tekið verður fyrir í bókaklúbbnum verður smáskáldsagan Úngfrúin góða og húsið; dagsetning verður nánar auglýst síðar.

